sunnudagur, febrúar 24, 2008

Kom í ljós á laugardaginn að það er sennilega ekki ráderinn sem er bilaður heldur er eitthvað að hjá símafyrirtækinu, þetta ætti að komast í lag á næstu dögum. Nema ef þeir þurfa að koma hingað þá verður það ekki fyrr en á þriðjudaginn í næstu viku. Þetta útskýrir kannski hvers vegna það hefur suðað svona hrottalega í heimasímanum, ég var virkilega farin að hugsa um að kaupa nýjan.